Nagladekk eða ónegld vetrardekk?
Uppfært
Vetrardekk eru af tveimur gerðum: negld og ónegld. Bæði eru gerð úr mjúku gúmmíi sem heldur gripi í kulda og bæði bera 3PMSF-merkið. Munurinn liggur í ísnum.
Nagladekk
Nöglin bíta í glæran ís og harðtroðinn snjó, þar sem ekkert gúmmí grípur. Þess vegna eru nagladekk kosturinn þar sem ísing er algeng: í sveitum, á heiðum, á fáförnum vegum sem eru hvorki saltaðir né ruddir strax.
Gallarnir: þau eru háværari, slíta malbiki og auka svifryk, hemla lengra á auðu malbiki en ónegld dekk og má aðeins nota frá 1. nóvember til 14. apríl (sjá reglurnar). Í vefversluninni eru negld dekk merkt „m/nöglum“ í vöruheiti.
Ónegld vetrardekk
Ónegld vetrardekk, oft kölluð loftbóludekk eða harðskeljadekk eftir tækninni sem framleiðandinn notar, treysta á mjúkt gúmmí og fínskorið mynstur með ótal örrifum sem grípa í snjó og krapa. Þau eru hljóðlát, þægileg, hemla vel á blautu og þurru malbiki í kulda og má nota allt árið.
Á blautum, glærum ís standa þau nagladekkjum að baki. Í borg, þar sem götur eru saltaðar og ruddar, skiptir það sjaldan máli.
Hvort á ég að velja?
- Borgarakstur mest allan veturinn: ónegld vetrardekk.
- Reglulegur akstur út á land, yfir heiðar eða snemma morguns fyrir söltun: nagladekk.
- Blandað: ónegld dekk af nýrri kynslóð duga flestum; nagladekk ef þú vilt mesta öryggið á ís og sættir þig við hávaðann.
Hvort sem þú velur: sömu dekk á öll fjögur hjól, aldrei negld að framan og ónegld að aftan, og skiptu þegar mynstrið nálgast 4 mm.
Skoðaðu vetrardekk í vefverslun BL, flettu eftir stærð eða sláðu inn bílnúmerið og fáðu réttu stærðina.